fjarskipti .
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):
Virðulegi forseti. Vegna þjóðaröryggishagsmuna þá eru þarna líka ákvæði um undanþágu frá upplýsingarétti varðandi umsagnir og annað þannig að ef þetta á að skoða þarf auðvitað að gæta vel að því í því samhengi. Ráðherra fjarskiptamála getur auðvitað létt af trúnaði en hvort það fari þá fram í samtali við þingið inn í þjóðaröryggisráði eða með einhverjum öðrum hætti þyrfti að skoða til að við náum árangri okkar með þessa grein. Mörg önnur lönd eru kannski með þetta í varnarlögum eða sérstökum öryggislögum, almennar heimildir, en ógn sem er talin steðja almennt að öryggi ríkis vegna löggjafar er auðvitað öryggis- og varnarmál í skilningi varnarmálalaga. Varðandi svigrúmið við útfærslu á innleiðingunni þá langar mig bara að segja að það er lítið svigrúm, það er takmarkað, og það er alls ekki markmiðið að ganga lengra en Kóðinn beinlínis gerir ráð fyrir, heldur er fyrst og fremst horft á tækifærin til að fullnægja kröfum um innleiðingu að teknu tilliti til aðstæðna Íslands og landsbundinna aðstæðna og tækifæranna og mikilvægis þess að styrkja fjarskiptasamband, samkeppni, vernd neytenda og fleira.