fjarskipti .
Frú forseti. Ég þakka fyrir svarið. Fyrst áfram um 3. mgr. 87. gr., þá er það bara mjög gott að heyra og ég held að þetta sé eitthvað sem við eigum eftir að tala um í seinni umferð þegar málið kemur hingað inn til vinnslu og samþykktar. En það er alla vega mjög jákvætt og gott að heyra frá hæstv. ráðherra að vel hefur verið farið í gegnum þetta mál. Sama segi ég varðandi innleiðinguna. Þetta er náttúrlega eitthvað sem við þurfum að fara að vanda okkur betur við og svo dæmi sé tekið eru hér á dagskrá þingsins næstu daga nokkur innleiðingarmál og þau eru flest því marki brennd að það er lítið talað í þeim og það er kannski ein af ástæðunum fyrir því að það eru fáir ef einhverjir sem átta sig á því þegar verið að flækja málin svona og skeyta saman. En ég ætla að þakka hæstv. ráðherra fyrir að svara beiðni minni um að koma hingað upp, ég missti af henni þegar hún mælti fyrir málinu, og endurtek bara óskir mínar um að þetta mál fái góða meðferð þingsins.