fjarskipti .
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta er hárrétt, þetta er hálfóþægilegt. Hér fór hæstv. ráðherra yfir það að ákveðin leynd ríkti yfir málum sem varða þjóðaröryggi og það þarf þá að grípa til einhverra aðgerða af þessum toga, þetta er gríðarlegt inngrip, án þess að það sé raunverulega vitað hvað liggur þar að baki. Ég hef sérstakar áhyggjur af þessu vegna þess, hv. þingmaður man það líklega eins og ég, að þegar málið var í vinnslu umhverfis- og samgöngunefndar fyrir tveimur árum þá má tengja það við komu þáverandi varaforseta Bandaríkjanna til Íslands og, hvað á ég að segja, orðaskaks á milli hans og kínverska sendiherrans um þessi mál. Þá lá það bara svo í augum uppi hversu gríðarlega miklir viðskiptahagsmunir eru þarna líka. Nú vil ég ekki gera lítið úr hinum hagsmununum, ég er bara að segja að ef við höfum ekki upplýsingarnar um hvort vegur þyngra, hvenær og hvar, þá er erfitt að átta sig á hlutunum. Þannig að svar mitt er eiginlega að mér finnst ekki nægilega vel girt fyrir þetta og ég myndi telja (Forseti hringir.) að það væri eitt af mikilvægum hlutverkum nefndarinnar sem nú fær málið að vinda ofan því.