fjarskipti .
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég held nefnilega að það sé þannig í þessu máli, eins og með svo mörg önnur, að stjórnvöld ætli bara að láta það ráðast hvernig vinnst úr því vegna þess að það eru auðvitað gríðarlega miklir hagsmunir undir og ekki bara fyrir fjarskiptafyrirtækin, heldur fyrir neytendur, hvar kostnaðurinn lendir á endanum og síðan auðvitað fyrir þjóðaröryggishagsmuni sem við viljum passa svo vel upp á. En samt er ekki hægt að skilja við málið þannig að þetta gerist bara einhvern veginn og mér finnst að við hér í þinginu þurfum að hafa skoðun á því og taka afstöðu til þess með hvaða hætti fyrirtækin sem veita þessa þjónustu séu í tiltölulega tryggri stöðu hvað íþyngjandi inngrip varðar. Nú veit ég að hv. þingmaður er ekki lengur fulltrúi í umhverfis- og samgöngunefnd en ég hvet hv. þingmann, af því að fulltrúi Viðreisnar í nefndinni er ekki í salnum, að minna á þetta atriði, að því verði haldið til haga í umhverfis- og samgöngunefnd.