152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[18:59]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Frú forseti. Þetta er nákvæmlega málið og ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir að vekja máls á þessu og mun sannarlega taka brýningunni og ég held að þetta sé eitthvað sem við þurfum öll að vera mjög vakandi fyrir. Ég hegg eftir því sem Póst- og fjarskiptastofnun segir í umsögn sinni þar sem hún er einmitt að vekja athygli á þessu máli og hefur áhyggjur af neikvæðum afleiðingum verði samkeppnisstöðu fyrirtækja raskað með aðgerðum stjórnvalda, í samhengi við þessa túlkun á 87. gr. Svo segir, með leyfi forseta:

„Ekki síst í þessu ljósi telur PFS vera mikilvægt að efla þekkingu stofnunarinnar á uppbyggingu og virkni 5G farneta þannig að stofnunin geti átt þess kost að vinna með hagsmunaaðilum að finna hagkvæma og örugga leið til að ná fram markmiðum frumvarpsins, án þess að raska samkeppni umfram það sem nauðsynlegt er.“

Þarna kemur líka mjög góður punktur. Það þarf að vera til staðar hjá okkur í samfélaginu þekking á þessum málum þannig að við séum ekki þiggjendur að því sem einhverjir aðrir hafa um málið að segja. (Forseti hringir.) Þetta er náttúrlega alltaf býsna mikilvægt en ég held óvíða mikilvægara en akkúrat í þessum kjarnainnviðamálum okkar.