152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[19:01]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni sérstaklega fyrir umfjöllun um 87. gr. Þar í kring eru greinar sem eru áhugaverðar í samhengi þeirrar greinar. Það eru annars vegar gögn um fjarskipti, gagnageymd, og hins vegar að ef Fjarskiptastofa metur það nauðsynlegt skal gera samning milli netöryggissveitar og fjarskiptafyrirtækis sem getur falið í sér að netöryggissveit geti sett búnað inn í tækjasal fjarskiptafyrirtækis, til þess einfaldlega að njósna um nettraffík og ýmislegt svoleiðis og persónuverndin kemur inn þar á eftir. Þá hefur maður kannski smááhyggjur af því að ef heppilegur búnaður til þess að setja á njósnatæki netöryggissveitarinnar yrði gerður sá fjarskiptabúnaður sem fjarskiptafyrirtækin geti notað, (Forseti hringir.) hinn yrði útilokaður. (Forseti hringir.) Þessar örfáu greinar þarna samanlagt valda mér miklum áhyggjum hvað persónuvernd varðar, (Forseti hringir.) hvað gagnageymd varðar, hvað netöryggi í heild sinni varðar af því að njósnabúnaður í fjarskiptatækjum getur valdið aukaóöryggi.