fjarskipti .
Frú forseti. Ég ætla bara að taka þessari áskorun hv. þingmanns og fara ofan í þetta. Ég man eftir skýrslunni á sínum tíma og las hana þá. En það er alveg rétt. Það er full ástæða til að fara betur yfir hana og aftur. Við erum svo sem búin með tímann og ég hef ekki færi á að kasta annarri spurningu til hv. þingmanns en þarna eru náttúrlega hlutir sem þarf að uppfæra af því að ég held að það sé alveg ljóst að ýmislegt hefur gerst á 20 árum sem menn sáu ekki fyrir. Þetta er kannski eitt mikilvægasta verkefnið sem þingið getur tekið að sér og mögulega sameinast um. Það væri fátt annað sem við gerðum sem kæmi að meira að gagni. Tökum boltann.