152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[19:12]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég held að það sé óhjákvæmilegt að ræða aðeins um aðdraganda útgáfu þessarar bókar sem kemur nú út í þriðja sinn, frumvarp til laga um fjarskipti, nú frá nýjum útgefanda, hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Ferill þessa máls, sem lengi hefur verið aðkallandi hér á Alþingi, hefur um margt verið sérstakur og gætt að því er virðist ósamstöðu innan ríkisstjórnarinnar um mikilvægi þess að klára þetta mál og þá hugsanlega með hvaða hætti ætti að klára það. Það er óneitanlega sérkennilegt að heyra hæstv. innviðaráðherra, sem áður flutti þetta mál, kenna stjórnarandstöðunni um hversu seint þetta hafi gengið. Þá er rétt að rifja það upp að fram fór gríðarlega mikil vinna í hv. umhverfis- og samgöngunefnd á síðasta kjörtímabili við vinnslu þessa máls og sú vinna skilaði heilmiklum árangri. Það gekk meira að segja svo langt að skipuð var sérstök undirnefnd til að skoða sérstaka þætti þessa máls og hún skilaði af sér niðurstöðu og allt virtist vera til reiðu. En þá ákvað ríkisstjórnin sjálf að bíða með þetta, að því er virðist vegna þess að Vinstrihreyfingin – grænt framboð hafi tengt þetta við mál um hálendisþjóðgarð og talið viðeigandi að binda áform um að koma í veg fyrir aukna orkuvinnslu við það að hindra að þetta mál, þetta aðkallandi mál sem lengi hafði beðið og fengið mikla vinnu, kláraðist. En hér er það komið aftur og í þriðja sinn og ástæða til að ræða nokkra grunnþætti þess í víðari skilningi. Ég vona að hæstv. forseti sýni því skilning að ég hafi ekki tíma og ekki næga tæknilega þekkingu til að fara djúpt í einstakar greinar. En þetta er þó mál sem varðar mjög stóra og mikilvæga grundvallarhagsmuni samfélagsins og ég ætla að ræða það á þeim nótum.

Fyrst vil ég víkja að því sem blasir við nú í tengslum við fjármálaáætlun sem var kynnt fyrr í dag. Þetta mál er ekki fjármagnað. Þetta er enn ekki full fjármagnað þrátt fyrir þá miklu vinnu sem hefur farið í undirbúning þess og skýtur óneitanlega skökku við að á sama tíma og mælt er fyrir því hér í þinginu skuli kynnt fjármálaáætlun þar sem er ekki gert að því er virðist, a.m.k. ekki að fullu leyti, ráð fyrir áhrifum frumvarpsins. Að vísu er gert ráð fyrir um 500 millj. kr. í tekjur af endurúthlutun tíðna, einskiptistekjur, en viðbúið að þær tekjur ríkisins eða kostnaðurinn af því að fjármagna það af hálfu fyrirtækjanna lendi á endanum á neytendum. Hér er því um að ræða mál sem hefur fengið talsverða umræðu og mikinn undirbúning en kemur samt á vissan hátt óklárað af hálfu ríkisstjórnarinnar. Það er kannski í eðli þessa máls að með því er verið að elta fremur en að leiða þróunina. Má segja að atburðir síðustu missera hafi um margt breytt forsendunum fyrir þessu máli en þó hefði í flestum tilvikum mátt sjá fyrir eða a.m.k. gera ráð fyrir því að hlutirnir gætu breyst hratt hvað varðar til að mynda netöryggismál. Á því sviði eru Íslendingar of aftarlega á merinni og að reyna að elta þá þróun, ef stjórnvöld eru þá yfir höfuð farin af stað sem skyldi við að reyna það. En það er ekki nógu vel gert ráð fyrir því hvernig brugðist skuli við henni í þessu frumvarpi.

Þetta lýtur að grunninnviðum samfélagsins og þess vegna er afskaplega sérkennilegt að málið sé flutt af hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, án þess að ég sé að setja neitt út á það með hvaða hætti sá tiltekni ráðherra hefur haldið á málinu. En það að þessi ríkisstjórn í sinni sérkennilegu endurhönnun Stjórnarráðsins og nýju verkaskiptingu skuli hafa stofnað sérstakt innviðaráðuneyti og ekki gert ráð fyrir því að fjarskipti væru hluti af innviðum sýnir hugsanlega að þetta mál njóti ekki nægilegs forgangs eða hafi ekki þann sess sem það ætti að hafa hjá ríkisstjórninni. Því hvað eru innviðir ef ekki fjarskipti? Jú, auðvitað vegir og brýr en næst þar á eftir hlytum við að nefna fjarskiptin sem þó komast ekki að í innviðaráðuneyti. Þetta hefur sem sagt með öðrum orðum verið dálítið hliðsett hjá þessari ríkisstjórn af ýmsum ástæðum sem einhverjar eru kunnar og aðrar síður. En fyrst og fremst er þetta mál sem er á eftir áætlun og gengur auk þess út á að elta þróun sem er þegar komin lengra en þetta frumvarp gerir ráð fyrir. En vegna þess að þetta eru grunninnviðir þá vakna óhjákvæmilega ýmsar stórar pólitískar spurningar og þetta er ekki í fyrsta skipti sem fjarskiptamál vekja stórar pólitískar spurningar í íslenskum stjórnmálum. Það má t.d. rifja upp, vegna þess að það setur þetta í ákveðið samhengi, bændafundinn svokallaða árið 1905, fyrir meira en öld síðan, fund þar sem bændur og aðrir mættu til að mótmæla frumvarpi um fjarskipti. Reyndar hafa bændur verið hafðir fyrir rangri sök í meira en 100 ár vegna þessa fundar og því haldið fram enn þann dag í dag að bændur hafi verið mótfallnir símanum og það sé til marks um hversu afturhaldssamir þeir hafi verið. Raunin var auðvitað þveröfug. Bændurnir voru að mótmæla þeim samningi sem verið var að gera og þeirri tækni sem verið var að innleiða af því að þeir höfðu kynnt sér málin það vel að þeir vildu nýta nýrri og betri tækni og gera hagstæðari samninga sem væru á forsendum og undir algjörum yfirráðum íslenskra stjórnvalda. Það er einmitt atriði sem kemur svolítið við sögu í þessu, þ.e. hversu mikil völd hafa íslensk stjórnvöld eða Ísland sem ríki yfir okkar eigin fjarskiptum. Á sínum tíma tókust á tillögur um annars vegar sæstreng og svo loftskeyti þar sem ríkisstjórn undir forystu Hannesar Hafsteins vildi ráðast í lagningu sæstrengs en bændur ásamt Einari Benediktssyni og fleirum töldu nýrri loftskeytatækni betri og auk þess samninginn við stóra norræna símafélagið óhagfelldan, ekki hvað síst vegna þess að Íslendingar yrðu með því of háðir Dönum sem myndu lána fyrir framkvæmdinni gegn ákveðnum yfirráðum yfir nýtingu strengsins. Ég heyrði hæstv. ráðherra nefna það hér áðan að það skipti ekki öllu máli hverrar þjóðar fyrirtækin sem ættu innviðanna væru, en er það örugglega svo? Er það mat stjórnvalda í öðrum Evrópulöndum, ég tala nú ekki um nú allra síðustu misseri, að það skipti ekki máli hverjir eigi kerfið? Aðalatriðið sé regluverkið? Eða getur verið að með erlendu eignarhaldi takmarkist að einhverju leyti geta okkar til að hafa stjórn á þessum mikilvægu innviðum sem auk þess varða augljóslega öryggi landsins.

Þá kem ég að netörygginu. Eins og margir þingmenn hafa getið um þá erum við þar heldur aftarlega á merinni og það er áhyggjuefni. Auðvitað hefði verið æskilegt að ríkisstjórnin hefði notað tækifærið, miðað við þann tíma sem hefur farið í þetta mál og þá vinnu sem liggur þar að baki, til að yfirfara netöryggismálin og leggja til úrræði sem gætu haft einhver áhrif. Auðvitað geri ég mér grein fyrir því að það er erfitt við þetta að eiga. Það er kannski ómögulegt að koma í veg fyrir að leyniþjónustur stærri ríkja geti farið sínu fram í fjarskiptakerfum hvað varðar aðgang að upplýsingum. En kerfið þarf a.m.k. að vera í stakk búið til að starfa áfram þrátt fyrir hugsanlegar árásir að því marki sem það er hægt. Nú væri til að mynda ágætt að heyra mat einhvers Píratans á því hvaða möguleikar eru fyrir hendi á því yfir höfuð að verja kerfi fyrir því að það sé einfaldlega brotið. En a.m.k. þurfum við að reyna, eins og til að mynda Eistar hafa gert og ég heyrði nefnt hér í ræðu fyrr í dag. Það var mjög áhugavert að koma til Eistlands fyrir nokkrum árum og kynnast því sem sú litla þjóð hefur gert í þessum málaflokki sem hún hefur tekið mjög traustu taki og telur mikilvægt.

Það er spurning hvort ég næ að fara yfir mörg þessara sérstöku atriði í þessum greinum sem ég hefði viljað nefna sérstaklega en læt e.t.v. nægja, því að tíminn er að klárast, að nefna tíðniréttindin. Tíðniréttindi eru augljóslega takmörkuð gæði og úthlutun þeirra hefur orðið að stórmáli í mörgum löndum. Ég man til að mynda þegar 3G tæknin var innleidd að stjórnvöld í mörgum Evrópuríkjum buðu þetta út og þeir sem buðu hæst náðu þessu en þurftu að bjóða gríðarlega háar upphæðir. En við úthlutun takmarkaðra gæða eins og þessara þurfum við, sérstaklega í þessu litla landi, að huga að fleiru en eingöngu því sem kemur beint í kassann fyrir sölu á tíðniréttindum. Það þarf líka að leggja ákveðnar kvaðir á þá sem fá þessi réttindi því að þeir gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu. Þetta minnir til að mynda á umræðu sem við áttum hér fyrir nokkrum árum um ljósleiðaravæðingu, áform stjórnvalda um ljósleiðaravæðingu landsins alls, þar sem ólík fyrirtæki voru farin að leggja ljósleiðara hlið við hlið í sömu skurðina, jafnvel að grafa þá upp aftur til að leggja leiðarann við hlið hinna, en þó fyrst og fremst á þeim svæðum þar sem hagkvæmnin var mest, þ.e. til að fleyta rjómann ofan af. Það var hins vegar hægt með samstillingu, sem óhjákvæmilega er hlutverk stjórnvalda þegar um svona grunninnviði er að ræða, að koma á samnýtingu ljósleiðara og þar með tengja landið allt hraðar en ella. Við þurfum nefnilega í fjarskiptamálum að hafa mikilvægi byggðamála og jafnræðis landsmanna um allt land í huga. Fátt er eins mikilvægt til að viðhalda og efla byggð um allt land og fjarskiptin. Vegir, fjarskipti og auðvitað grunnheilbrigðisþjónusta og menntun og slíkt en svo margt annað, eiginlega flest annað nú til dags, atvinnulíf og slíkt, byggist á því að fjarskiptin séu í lagi. Þess vegna mega stjórnvöld ekki búa til kerfi sem gerir fyrirtækjum kleift að fleyta rjómann ofan af markaðnum með því að þjónusta eingöngu þéttbýlustu og þannig verðmætustu svæðin að mati fyrirtækjanna.

Ég sé að ég hef ekki tíma til að nefna fleiri þætti málsins sérstaklega, ég fæ kannski að koma hér aftur í ræðu til að gera það síðar, en ég fagna því þó að þetta mál sé loksins komið til afgreiðslu og aldrei að vita nema það klárist núna. Það er þó mikilvægt að umræða fari fram um það og sé víðtæk því að þetta er stórt og víðtækt mál og aðkoma þingsins mikilvæg eins og við höfum séð miðað við hvernig ríkisstjórnin hefur haldið á því til þessa.