152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[19:27]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir áhugaverða ræðu. Eitt af því sem ég hjó eftir var umræða þingmanns um það hvernig málið var tekið út í fyrra í einhverjum samningaviðræðum innan ríkisstjórnarinnar. Að sama skapi varð mér hugsað til þess að fyrr í dag, fyrir svona klukkutíma, nefndi hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson þegar Norðurlandaráð var að fjalla um netöryggi árið 2018 og hvernig vinstri flokkarnir, þar með talið Vinstri grænir, voru ekki sammála því að fara í aukið samstarf á því sviði. Svo er það kannski skilningurinn á því hvað netöryggi er og hver ógnin er og hvað við þurfum að gera til að tryggja netöryggi. Mín spurning til hv. þingmanns er hvort hann telji að einn af þremur möguleikum sé kannski að málið sé einfaldlega tekið út af því að þannig gerum við það bara í pólitíkinni. Ef þú færð ekki eitthvað, þá fær hinn ekki eitthvað, jafnvel innan stjórnarflokka. Eða var það vegna þess að þeir höfðu miklar áhyggjur af fjarskiptum á hálendinu? Ég efa nú að það hafi verið málið. Eða var það kannski það þriðja, að Vinstri grænir séu enn þá að misskilja hvað netöryggi er og telja að það sé einhver byssuófriðarhlutur sem þeir eiga erfitt með að sætta sig við og eiga við í sínum samtölum? Það væri gaman að heyra álit hv. þingmanns á þessu miðað við hans reynslu og þekkingu á þessum heimi.