152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[19:40]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Það er erfitt að halda því fram að þetta mál uppfylli ekki þessi atriði úr stjórnarsáttmálanum, einfaldlega vegna þess að atriðin voru það opin. Þetta voru einfaldlega stikkorð um betri og traustari fjarskipti o.s.frv., og umhverfisvæn fjarskipti, menn hafa bætt því við þarna. Fjarskipti eru held ég almennt mjög umhverfisvæn og eitt af því sem gerir okkur kleift að draga t.d. úr losun gróðurhúsalofttegunda er betri nýting fjarskipta og betri innviðir fjarskipta. En vegna þess hversu almennt þetta var orðað þá getur ríkisstjórnin haldið því fram að hún sé að uppfylla þetta almenna orðalag. Hefði mátt gera það betur? Eflaust, en fyrst og fremst þá með því að bregðast betur við þróun síðustu missera og ára, ekki hvað síst á sviði netöryggismála.