152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[19:45]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Hér stangast dálítið á spéhræðsla bæði fjarskiptafyrirtækja og hinna ýmsu fyrirtækja í atvinnulífinu við að láta vita af netárás. Það er að hluta til það sem netöryggissveitin eða Póst- og fjarskiptastofnun, Fjarskiptastofnun núna, óttaðist, að fjarskiptafyrirtæki létu ekki vita af því þegar þau hefðu orðið fyrir netárás af því að það gæti haft slæm áhrif á orðspor fyrirtækjanna. Þess vegna vilja þau vera bara inni í fjarskiptatækjunum, til að geta fylgst með því hvort þau verði í alvörunni fyrir árásum eða ekki. Þá firrar það fjarskiptafyrirtækin allri ábyrgð á því að athuga hvort einhverjar netárásir séu í gangi, netöryggissveitin er hvort eð er að fylgjast með því. En það býr líka til óöryggi af því að það að bæta við búnaði sem er hægt að nota til að ráðast á, þ.e. njósnabúnaðinum sem njósnasveitin notar, (Forseti hringir.) dregur úr netöryggi þegar allt kemur til alls. (Forseti hringir.) Það hefur víxlverkandi áhrif á búnaðinn (Forseti hringir.) sem er verið að nota og njósnabúnaðinn sem er jafnvel að búa til fleiri árásarpunkta.