fjarskipti .
Frú forseti. Þetta var ekki síður áhugavert en fyrra andsvar hv. þingmanns en vekur enn fleiri spurningar og aftur skortir mig tæknilega þekkingu til að fara út í það, eins áhugavert og það væri að geta spurt út í tæknilegar hliðar þessa máls. En ég minnist þess að hafa lesið bók um njósnir á 20. öld, frá því á millistríðsárunum og fram yfir stríð, og það er alveg ótrúlegt hvað menn gátu gert með þeirri tækni sem þá var til staðar, símtækninni og öðrum fjarskiptabúnaði. Og þá veltir maður því fyrir sér eins og tæknin er orðin núna: Er yfir höfuð hægt að koma í veg fyrir að þeir sem hafa þekkinguna, til að mynda leyniþjónustur stærri ríkja, komist í allar þær upplýsingar sem þeir vilja eða er a.m.k. hægt að koma í veg fyrir að utanaðkomandi aðilar geti eyðilagt kerfi þannig að þau séu ekki lengur starfhæf?