152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[19:48]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér fjarskipti og ég held að hv. þm. Björn Leví Gunnarsson hafi alveg trompað umræðuna áðan. Ef maður var eitthvað ruglaður fyrir í fjarskiptum og öryggismálum þá er maður alveg kolruglaður í dag. Því meira öryggi, þeim mun minna öryggi, ef ég skildi þetta rétt.

Ég er af þeirri kynslóð að fyrstu fjarskiptin sem ég varð var við voru í sveit, þrjár langar og ein stutt. Þá var maður að tala þar inn. Í dag væri það kallað Facebook eða andlitsbók en maður var kominn þarna í einhverja heyrnar- og talbók, skemmtidagskrá sveitarfélagsins, eða þeirra sem voru tengdir viðkomandi línu. Manni var bent á að passa sig að tala varlega vegna þess að það heyrðist allt. Þá var maður fljótur að uppgötva að það voru ákveðnir aðilar sem voru alltaf tilbúnir að hlusta, Gunna á næsta bæ, þá gerði maður alltaf í því að segja: Já, hún Gunna á næsta bæ sagði þetta. Þá heyrðist: Nei, ég sagði það aldrei! Þá sprakk auðvitað öll línan. Þetta virkaði alltaf. Ég held að þetta segi okkur að við séum á sama stað í dag, við stoppum ekki þá sem vilja koma inn á línurnar og hlera og komast að upplýsingunum. Ég held að þar séum við sennilega alltaf að elta skottið á okkur og verðum það áfram.

En ef við snúum okkur að þessu frumvarpi þá eru hér á ferðinni ný heildarlög um fjarskipti, eða Kóðinn, eins og frumvarpið hefur verið nefnt. Við þetta frumvarp er svo sem ýmislegt að athuga en að mörgu leyti er þetta frábært frumvarp. En við þurfum að átta okkur á því að við erum með heila bók, 130 blaðsíður og hvað, 100 greinar, eða meira? Þetta er ótrúlega flókið. Maður þarf ekki að vera að hissa á að það sé mikil umræða um þetta vegna þess að þó að við myndum tala hérna vel fram að páskum og fram yfir páska þá held ég að við kæmumst ekki nálægt því að átta okkur nákvæmlega á hvað er í gangi.

Eins og kom fram áðan telur Fjarskiptastofa að það þurfi að byggja upp sérstaka þekkingu á þessu máli. Ég verð bara að segja að ég er ekkert hissa á því vegna þess að þegar ég fór að reyna að stauta mig í gegnum þetta og kom að 5. gr., orðskýringum — ég fór að lesa og það eru nokkrar blaðsíður bara af því, 62 orðskýringar. Það var auðvitað miklu meira en nóg til að hugsa um en svo fór ég að fletta enn betur í gegnum þetta og komst að því að þetta eru 100 greinar. Síðan þegar maður fór að lesa greinargerðina — ef maður hafði haldið virkilega að maður gæti nú komist að því hvernig þetta var byggt upp frá upphafi, þá er maður kominn í tilskipanir EECC og ESB og þetta eru endalausar tölur. Ef við viljum flækja hluti virkilega vel og endilega þá er þetta alveg fullkomið rit til þess, a.m.k. er það búið að flækja mig alveg gjörsamlega. Ég taldi að ég gæti nú farið nokkurn veginn í gegnum þetta en ég þarf greinilega lengri tíma.

Nú stendur til að veita Fjarskiptastofu heimild til að skilyrðisbinda tíðniúthlutanir þeim skilyrðum að skylt verði að veita reikiþjónustu. Einnig mun Fjarskiptastofa geta lagt kvaðir á fjarskiptafyrirtæki um að bjóða svæðisbundna reikiþjónustu „ef nauðsynlegt er að tryggja svæðisbundinn aðgang að þráðlausri þjónustu og að ekki sé til staðar önnur svipuð og raunhæf leið til að veita endanotendum aðgang“.

Mjög einfalt, en er það ekki. Vonir margra standa til þess að með slíkri þjónustu verði betur hægt að tryggja fjarskiptasamband, þá sérstaklega úti á landi, sem er auðvitað mikil þörf á. Víða er það svo að aðeins eitt fjarskiptafyrirtæki starfrækir senda á stóru svæði. Þegar svo stendur á er afar mikilvægt að allir geti tengst þeim sendum, jafnvel þótt fólk eigi í viðskiptum við önnur fjarskiptafyrirtæki.

Fjarskiptastofa hyggst einnig gera kröfu um að tíðniheimild af útbreiðslu afkastamikilla háhraðaneta, farnetaþjónusta 5G, nái til 99,5% lögheimila og vinnustaða með heilsársatvinnustarfsemi innan tiltekinna tímamarka. Í þeim efnum má hugsa sér að uppbyggingarkrafan verði áfangaskipt, t.d. yfir tveggja til sex ára tímabil, út tíðniheimildirnar.

Það er jákvætt að stjórnvöld muni stuðla að því að nær öllum verði tryggð háhraðanet, farnetsþjónusta á lögheimili og heilsársvinnustöðum, en eftir stendur vegakerfið. Fjarskipti eru afar mikilvæg til að tryggja öryggi á vegum landsins. Því vona ég að stjórnvöld fari samhliða áðurnefndum áformum í það verkefni að efla fjarskiptaþjónustu á vegum landsins. Það gildir ekki bara um vegi landsins heldur líka óbyggðir. Þó að við vitum líka af mörgum köflum á vegum landsins þar sem næst ekki samband getur það verið enn bagalegra þegar fólk er uppi í óbyggðum, jafnvel í hættu, og getur ekki náð neinu sambandi. Því miður, eins og við höfum oft áttað okkur á, eru það oft erlendir aðilar sem lenda í vandræðum vegna þess að þeir gera sér ekki grein fyrir hvernig staðan er hér á landi vegna þess að þeir koma kannski beint úr stórborg þar sem þeir hafa getað náð sambandi hvar sem þeir eru staddir.

En það er með öllu ólíðandi hve víða fjarskipti eru í ólagi. Því er það jákvætt að frumvarp þetta leggi til ákveðnar breytingar til batnaðar. Eftir stendur engu að síður það vandamál að víða þarf að byggja upp betri fjarskipti, bæta við sendum, endurnýja úrelta senda o.s.frv. Þá hafa sveitarfélög á landsbyggðinni ítrekað bent á að útbreiðslukort Fjarskiptastofu gefi ekki rétta mynd af fjarskiptum. Víða séu gloppur sem þörf er á að kortleggja og lítið þurfi út af að bregða til að fjarskiptasamband versni til muna. Það er jákvætt að til standi að bjóða upp tíðniheimildir í stað þess að úthluta. Þannig má betur tryggja jafnræði milli aðila á markaði. Þó ber að varast það að aðilar í markaðsráðandi stöðu geti tryggt enn betur forskot sitt í gegnum slík útboð. Það er nauðsynlegt að tryggja að úthlutunin verði dreifð milli aðila á tíðnirófinu þannig að ekki skapist misvægi á þá leið að t.d. einn aðili fari með stóran hlut tíðni á öðrum enda tíðnirófsins sem boðið er út.

Það vekur furðu að ríkisstjórnarmeirihlutinn hafi fellt út sektarákvæðið með veltutengingu í Mílumálinu svokallaða en leggi svo fram skömmu síðar frumvarp sem inniheldur mjög svipað sektarákvæði með veltutengingu. Hvers vegna er þessi hringlandaháttur á stjórnarfrumvörpum? Þeim er breytt einungis til þess að leggja aftur fram upphaflegt frumvarp eða þau afturkölluð án útskýringa. Þetta er nefnilega einmitt það sem hefur verið einkenni hjá þessari ríkisstjórn, ef maður botnar ekki í fjarskiptalögunum, hvernig í ósköpunum á maður þá að botna í ríkisstjórninni? Það gæti verið út af fyrir sig að mörgu leyti jafn flókið en við verðum samt einhvern veginn að tryggja öryggi, netöryggi, alls staðar. Við vitum að þar undir eru t.d. björgunarsveitir.

En það hræðir mann líka þegar maður heyrir um að það sé eiginlega svo til vonlaust að tryggja að hægt sé að koma í veg fyrir innbrot í þessi kerfi, að það sé eiginlega, liggur við, sama hvað er gert, það verði alltaf jafn flókið að vinna gegn því. Síðan segir sig auðvitað sjálft að það skiptir líka máli hvernig kerfi eru notuð og það hvaðan þau koma held ég að geti verið ákveðin áskorun. Spurningin er auðvitað hversu góð þau kerfi eru sem verða sett upp, hvort tryggt sé að þau virki nógu vel. Eins og var talað um hér áðan er búið að vera að tala um að setja upp kerfi, vaktakerfi til að vakta hvort verið sé að brjótast inn í kerfið. Ég segi fyrir mitt leyti að það verður örugglega gífurlegur höfuðverkur fyrir þá sem eiga að vinna eftir þessum lögum að reyna að tryggja að þessar 130 bls. með 110 greinum — að það verði hægt að tryggja að einhver geti með öruggum hætti áttað sig á því að verið sé að brjóta einhverja grein þessara laga, og eins og ég sagði þá fyrst eftir að hann er búinn að læra 62 orðskýringar með góðum skýringum á hverju einasta orði. Þetta er eiginlega, held ég, vonlaust. Ég segi fyrir mitt leyti að ég myndi dást að þeim einstaklingi sem gæti farið í gegnum þetta. Ef þetta minnir mig á eitthvað þá minnir þetta mig á hið bútasaumaða almannatryggingakerfi sem enginn skilur og enginn getur reiknað neitt út nema ein tölva sem er búið að forrita, sem segir bara já eða nei.