152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[20:40]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir hans ræðu um netöryggið, jesús minn. Þegar ég var búinn að hlusta á þig þá hugsaði ég: Jú, þetta er sniðugt, jú, þetta gæti virkað svona. En svo komst ég að því í lokin að þetta er bara vonlaust, er það ekki? Það er ekki hægt að láta þetta virka. Við getum ekki búið til þetta öryggi. Ég sé ekki hvernig vegna þess að ef við erum með mörg kerfi og þetta kerfi fer ofan á hitt kerfið getur það valdið bilun í því kerfi og ef við erum bara með eitt kerfi sem hrynur þá hrynur allt. Ég bara næ ekki hvernig á að koma þessu á. Annað sem ég hjó eftir var þegar þú talaðir um fast verð og vísaðir þar í Póstinn, að það gætu orðið svona hörmungar eins og urðu hjá Póstinum, að verið sé að setja fast verð sem verður kannski fast í mörg ár eða það verður ekki rétt verð. Ég vil fá skýringar á því hvort þú ert að tala um að það verði of flókið að finna rétta verðið eða að finna út hvað þjónustan kostar og þar af leiðandi geti þetta kerfi orðið fyrir svipuðum hörmungum og Pósturinn. Ef svo er, hvað getum við gert til að koma í veg fyrir það? Ég er að spá í hvort það sé einhver einföld lausn á því. Svo er ég líka innilega sammála í sambandi við tryggingafélögin og sýnileika þeirra. Ég hefði ekki orðið hissa þótt við hefðum fengið eina svona bók bara um það eitt og sér með miklu fleiri köflum.