152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[20:42]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég hef svo sem minni áhyggjur af alþjónustunni í framkvæmd í þessu heldur en hjá Póstinum. Pósturinn er að breytast svo mikið, það er öðruvísi kerfi. En það gæti alveg verið þörf fyrir alþjónustu á einhverjum svæðum á Íslandi og þá er það Fjarskiptastofnun sem á að uppreikna það á hverju ári hver kostnaðurinn er við að viðhalda þjónustunni. Það er yfirleitt mestur startkostnaður við að koma upp sendi og eitthvað því um líkt, ég hef svo sem minni áhyggjur af því. Það eru ekki sömu gjöldin og þetta aukasendingargjald vegna póstsendinga erlendis frá og slíkt, eitthvað ógagnsætt sem við lendum í þar — eða hver veit hvað þeim dettur í hug svo sem, þannig að jú, jú, við getum alveg endað þar.

Varðandi netöryggi og að það sé ekki til neitt öryggi þá er alveg til netöryggi en við verðum bara að nálgast það út frá því sjónarhorni að öryggið er aldrei algjört, nákvæmlega eins og við erum aldrei örugg fyrir því að það brjótist einhver inn heima hjá okkur eða steli bílnum eða eitthvað svoleiðis. Þetta er nákvæmlega eins. Við þurfum ekkert að óttast það á neinn annan hátt. Þetta er bara enn einn vettvangur þar sem við þurfum að læra umgengnisreglurnar, t.d. eins og hv. þingmaður talaði um áðan varðandi lykilorðin, ástæðuna fyrir því að uppfæra lykilorð reglulega og reyna að muna þau o.s.frv. Þumalputtareglan þar er bara að hafa lykilorðið löng og þegar þú ert með löng lykilorð er oft erfitt að muna þau. En það er líka hægt að búa til langt lykilorð sem er auðvelt að muna sem væri t.d. bara eins og frumvarp til laga um fjarskipti frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Ég get alveg munað þetta lykilorð. Það er langt og það er leiðinlegt að skrifa það en það er gott lykilorð.