152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[20:44]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Jú, lykilorð. Ég veit að einhver notaði orðið lykilorð sem lykilorð. Mér skilst að það sé best með lykilorðið að hafa bókstafi, tölustafi, hástafi, lágstafi og alls konar strik og kúnstir, en ég veit ekki hvort það skiptir nokkru máli. Nei, það skiptir engu máli, þingmaðurinn hristir bara hausinn. En ég tók líka eftir því í umræðunni að þú varst að tala um umferðarstýringar og mismunun í þjónustu í sambandi við netleysi, (BLG: Nethlutleysi.) nethlutleysi og einhverjar umferðarstýringar. Ég verð bara að segja að ég náði þessu ekki alveg þannig að það væri gott að fá aðeins betri skýringu á því hvað þarna var um að ræða.