152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[20:45]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Nei, það er ekkert endanlega betra að vera með sérstaka stafi og tölustafi og hástafi og skrýtin tákn og svoleiðis en það að hafa möguleikann á því skiptir máli. Besta lykilorðið er einfaldlega bara að bæta við stöfum, hafa það lengra. Það er miklu meira öryggi fólgið í því en að bæta við hástöfum og lágstöfum hingað og þangað. Það er allt í lagi að gera það líka en er í rauninni óþarfi eftir því sem lykilorðið lengist.

Varðandi nethlutleysið snýst þetta um að ef notandi ætlar að reyna að nálgast einhverja þjónustu frá YouTube eða frá Metatube þá fái hann sömu þjónustu frá báðum aðilum, óháð öllu öðru. Að netfyrirtækið sem er inn á milli geti ekki sagt: Þú borgar mér meira, þar af leiðandi ætla ég að útvega hraðari nettraffík hérna en þarna, eða bara slökkva og vera ógeðslega leiðinlegur. Þetta var tengt því þegar verið var að reyna að stjórna ólöglegu niðurhali. (Forseti hringir.) Þetta átti að vera einhvers konar leið (Forseti hringir.) til þess að útiloka allt annað á netinu en það sem var búið að votta sérstaklega að væri einhvers konar (Forseti hringir.) viðurkenndur þjónustuaðili.