fjarskipti .
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir afskaplega tæknilega ræðu og aftur kem ég hingað upp til þess að lýsa aðdáun minni á djúpri tölvuþekkingu og tækniþekkingu Pírata og ætla í rauninni að misnota aðstöðu mína hér. Við erum hér að setja — eða mögulega, hér er alla vega verið að flytja frumvarp sem verður mögulega að lögum til að reyna einhvern veginn að tryggja okkar netöryggi. Hér hefur hv. þingmaður rætt um að koma fyrir boxi sem minnkar einhvern veginn þessa sjálfkrafa ábyrgð og eftirlitsskyldu fjarskiptafyrirtækjanna til þess að reyna sjálf að vakta mögulegar netárásir, og þá kemur að spurningunni: Er það svo að netárás fari fram inni í fjarskiptafyrirtækinu? Er þetta í einhverjum skýjum? Er það í tæknibúnaðinum sjálfum sem netárás getur átt sér stað? Og ef maður smækkar þetta niður í bara heimili, á netárás sér stað inn í forrit hjá einstaklingum, inn í búnað hjá einstaklingum eða inn í bara já, routerinn? Hvar á netárás sér stað?