fjarskipti .
Virðulegur forseti. Ég þakka góða spurningu og svarið er tiltölulega einfalt: Alls staðar. Alls staðar þar sem er nettenging, ísskápurinn ef hann er snjallvæddur, ljósaperan meira að segja líka, það eru til svona snjallvæddar ljósaperur. Um leið og maður er kominn með einhverja tengingu við einhverja vinnslugetu er hægt að ráðast á það og nota það t.d. til að gera árás, netárás, á einhverja aðila, svokallaða „denial of service“ eða „neita um þjónustu“-árás. Þegar við kaupum t.d. ljósaperu, ísskáp eða brauðrist eða hvað sem er sem hefur snjalltengingu og við getum tengt í símann okkar — búnaðurinn sjálfur í ísskápnum og svoleiðis er eiginlega aldrei uppfærður eftir að hann er keyptur, engar hugbúnaðaruppfærslur gerðar á þeim örgjörvum og því um líku, forritum sem eru þar, þannig að allir öryggisgallar eru alltaf til staðar. Og ef einhver kemst fram hjá eldveggnum og inn á þessa öryggisgalla þá er hann búinn að ná stjórn á því og þá er hann kannski allt í einu kominn með 10.000 ísskápa úti um allan heim [Hlátur í þingsal.] sem hann er með stjórn á og getur notað til að endurforrita og senda beiðnir um þjónustu frá einhverjum einum aðila sem nær ekki að taka við 10.000 beiðnum í einu eða milljón beiðnum í einu frá ísskápum úti um allan heim og þjónustan dettur niður. Ég ætla ekki einu sinni að þykjast vera sérfræðingur í þessu, ég þykist bara vera leikmaður í þessu. Ég skil svona grunninn að þessu og aðstæðurnar. Ég er kannski ekki viðvaningur í þessu en ég ætla ekki að þykjast vera sérfræðingur í þessu þannig að fólk má alveg taka því sem ég er að segja með svona — ég er að reyna að útskýra þetta á einfaldan hátt (Forseti hringir.) sem er vonandi aðgengilegur þannig að þegar ég hef sagt að ræðan mín sé tæknileg þá kann ég því miður ekki að gera það einfaldara en þetta.