fjarskipti .
Frú forseti. Þá komum við að þessu: Við erum t.d. með hegningarlög og í hegningarlögum er tilgreint hvað má ekki gera, hvað flokkast sem brot. Hér erum við að búa til einhvers konar regluverk og upplýsa um það hvað þarf að gera til þess að tryggja netöryggi, hvaða varnir. Og þá vil ég spyrja kannski aftur: Má ekki segja að hér sé um að ræða handbók eða leiðbeiningabók um það hvernig fjarskiptafyrirtækjum og stjórnvöldum ber að bera sig að til varnar netárásum? Við vitum að netárásir eru ólöglegar, það er ekkert — jú, það er væntanlega eitthvað verið að fjalla um það líka í einhverjum af þessum hundrað og eitthvað greinum. En er þetta ekki í rauninni leiðbeiningarrit um hvernig ber að verjast?