152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[21:01]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Frú forseti. Við erum hér að ræða grundvallarbreytingar á íslenskri fjarskiptalöggjöf, breytingar sem fela í sér innleiðingu á efnisákvæðum tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1972 frá 11. desember 2018 um setningu evrópskra reglna um fjarskipti sem er alla jafna vísað til sem Kóðans. Í grunninn erum við að breyta löggjöfinni til samræmis við þetta uppfærða samevrópska regluverk. Þetta er auðvitað heilmikill doðrantur og margar hliðar á þessu sem hefur verið komið inn á hér í kvöld og nú síðast ratað á svolítið réttar heimspekilegar slóðir, heyrðist mér. Ég held að mikilvægt sé að við höfum í huga þegar við ræðum þetta mál að ákvæði þessarar tilskipunar gefa talsvert svigrúm til útfærslu við innleiðingu í landsrétt og það skiptir máli hvernig það er gert. Það er allt of algengt að einhverju sé smyglað inn í svona frumvarpsdoðranta og þingið geri einhvern veginn ráð fyrir að það þurfi að vera þar vegna Evrópuréttarins en svo kemur í ljós að svo er aldeilis ekki. Þannig að við þurfum bara að skoða þetta með mjög gagnrýnum augum. Ég legg til að umhverfis- og samgöngunefnd rýni þetta frumvarp líka vel með hliðsjón af þeim háleitu markmiðum í fjarskiptamálum og á sviði fjarskiptaöryggis sem koma fram í greinargerð fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar. Það er svolítið kúnstugt að þrátt fyrir öll þau háleitu markmið er gert ráð fyrir að framlög til samgöngumála og fjarskiptamála, sem eru saman þarna á einu málefnasviði, í fjármálaáætlun, dragist bara mjög skart saman á næstu árum.

En gott og vel, ég sit ekki í umhverfis- og samgöngunefnd þannig að ég ætla bara að leyfa mér hér að einblína á mjög afmarkaðan þátt þessa frumvarps sem er 72. gr. þess. Þá vil ég kannski til að byrja með benda á að í 2. mgr. 37. gr. gildandi fjarskiptalaga er kveðið á um sex mánaða hámarksbinditíma í samningum neytenda við fjarskiptafyrirtækin. Þetta er ákvæði sem hefur verið í fjarskiptalögunum frá 2007. 72. gr. frumvarpsins sem við ræðum í dag er í grunninn efnislega samhljóða þessu ákvæði nema hvað, það er gert ráð fyrir að hámarksbinditíminn tvöfaldist, verði 12 mánuðir í stað sex.

Tilgangur ákvæðisins, þ.e. gamla ákvæðisins sem er í rauninni grunnurinn að þessu nýja ákvæði, er auðvitað að tryggja að skilmálar og verklag fjarskiptafyrirtækja við uppsögn samninga hindri ekki flutning neytenda milli fjarskiptafyrirtækja og hindri ekki virka samkeppni á markaði. Virk samkeppni á fjarskiptamarkaði, það eru orð sem koma víða fyrir í þessum stefnuplöggum ríkisstjórnarinnar, höfum það í huga. Þessi markmið um virka samkeppni eru auðvitað bara í takti við ákvæði 105. gr. tilskipunar (ESB) 2018/1972 sem kveður á um að óheimilt sé að kveða á um lengri binditíma neytenda en 24 mánuði. Hins vegar sé ríkjum heimilt að kveða á um styttri hámarksbinditíma, eins og er gert hérna, nema með þeirri breytingu sem áður greinir.

Hvernig er þessi breyting rökstudd í greinargerð frumvarpsins? Maður hefði haldið að það lægi þá kannski einhver greining á bak við breytinguna sem varðar — ég meina, þetta er grundvallarmál sem varðar sveigjanleika neytenda og í rauninni bara samningsfrelsi að einhverju leyti. Maður hefði haldið að svona breyting væri þá alla vega rökstudd með svolítið sannfærandi hætti. Kíkjum á rökstuðninginn í greinargerð frumvarpsins, með leyfi forseta:

„Með hliðsjón af breyttum samkeppnisaðstæðum er þó lagt til að hámarksbinditími verði lengdur í 12 mánuði. Aukið svigrúm í þessum efnum getur orðið neytendum í hag með tilliti til vöru-/þjónustuframboðs og verðlagningar. “ — Þetta er allt og sumt. Þetta er nú allur rökstuðningurinn fyrir þessari breytingu.

Þegar sams konar frumvarp var lagt fram á síðasta þingi þá gagnrýndu Neytendasamtökin mjög harðlega þessa breytingu. Í umsögn samtakanna segir:

„Tvöföldun á binditíma samrýmist að mati samtakanna illa markmiði laganna er lýtur að því að auka vernd og valmöguleika neytenda og stuðla að virkri samkeppni. Skammur hámarksbinditími heldur fjarskiptafélögum á tánum og veitir neytendum aukið frelsi til þess að elta hagkvæmustu leiðirnar hverju sinni. Samtökin líta svo að óbreyttur binditími samræmist betur markmiðum laganna.“

Neytendastofa er sama sinnis og gerir verulegar athugasemdir við að hámarksbinditími á samningum við neytendur skuli lengdur úr sex mánuðum í 12 mánuði. Að mati Neytendastofu var ákvæðið frá 2007 mjög mikilvæg réttarbót fyrir neytendur og hafði í för með sér aukinn hreyfanleika eftir því hvar kjör eru hagstæðust hverju sinni og eftir því hvaða þjónusta eða samsetning þjónustu hentar notkunarmynstri á hverjum tíma.

Nú má vel vera að einhver rök hnígi að því að lengja þennan hámarksbinditíma og jafnvel einhver rök sem snúa að hagsmunum neytenda og markmiðum um virka samkeppni o.s.frv. Það getur bara vel verið. En þá er lágmarkskrafa að það sé rökstutt í greinargerð með frumvarpinu, sérstaklega þegar fyrir liggur að frumvarpið er að koma fram svona lítt breytt í hvað, þriðja sinn? Já. Hagsmunir neytenda hljóta alltaf að eiga að njóta vafans þegar svona breytingar eru gerðar, ekki bara hagsmunir fyrirtækjanna.

Ég legg til að umhverfis- og samgöngunefnd rýni þá breytingu sem þarna er lögð til mjög vel með hliðsjón af hagsmunum neytenda.