fjarskipti .
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir andsvarið. Ja, eins og ég kom inn á þá getur vel verið að það hnígi einhver rök að því að haga málum með þessum hætti, að gera þessa breytingu. En nei, mér finnst það ekki til marks um vönduð vinnubrögð að leggja til svona breytingu án þess að færð séu einhver efnisleg rök fyrir henni. Ég held að það sé svona stutta svarið. Og af hverju dregur maður þetta upp og af hverju geldur maður varhuga við svona? Það er kannski m.a. vegna þess að núverandi ríkisstjórn tekur sér ekkert alltaf stöðu með neytendum og virkri samkeppni. Við sjáum það t.d. þegar kemur að alveg ótrúlegum reglum um sölu raforku til þrautavara þar sem mörg þúsund raforkunotendur hafa einhvern veginn verið ferjaðir yfir til eins fyrirtækis sjálfvirkt án þess að vera spurðir. Þetta er allt samkvæmt reglugerð sem ráðherra setti og leiðbeiningarreglum sem Orkustofnun setti. Þarna er verið að færa einu fyrirtæki á samkeppnismarkaði sjálfkrafa alveg ofboðslega mikil viðskipti í hverjum einasta mánuði. Á þetta hefur verið bent trekk í trekk. Ég gleymdi að nefna að fyrirtækið notaði aðstöðu sína til að búa til sérstaka taxta fyrir þessa þrautavaraneytendur raforku og verðlagði þá — ég man ekki, ég held að það hafi verið 70% hærra verð en hjá almennum neytendum. Þetta er eitt dæmi. Annað dæmi ræddum við, ég og hv. formaður umhverfis- og samgöngunefndar, í útvarpsþætti um daginn, en það er fyrirtækið ISNIC, sem er í rauninni bara í áskrift að íslenskum lénum sem enda á .is og sem er í einokunarstöðu, sem stjórnarmeirihlutinn stendur vörð um og dettur ekki í hug að hrófla við. Þannig að sporin hræða og, já, ég held að það þurfi að rýna þetta frumvarp einmitt með tilliti til þessara atriða.