152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[21:15]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að það sé óhætt að taka undir allt það sem hér kom fram. Þetta er auðvitað heilmikill doðrantur. Ég væri ekki að segja satt ef ég segðist hafa lesið hann til enda. Þá er einmitt ágætt að skoða bara afmörkuð atriði þarna. Jú, það má segja kannski að ráðuneytið og ráðherrann hafi aðeins fallið á prófinu þegar kemur að því að rökstyðja hvers vegna ákveðin breyting er lögð til. Eins finnst mér það bara lágmarkskurteisi gagnvart umsagnaraðilum sem hafa gagnrýnt til að mynda þetta, sérstaklega þegar verið er að leggja frumvarpið fram í þriðja sinn, að það sé þá brugðist við athugasemdum og gagnrýni.