fjarskipti .
Virðulegi forseti. Úr því að Neytendastofa talar um að það verði komið á fót sérstakri kæru- eða úrskurðarnefnd sem tekur á ágreiningsmálum þá virðist ekki vera til eitthvað sem tekur á ágreiningsmálum gagnvart neytendum. Þetta virðist líka vera svolítið loðið gagnvart neytendum, eins og hv. þingmaður sagði áðan, að í rökstuðningi var sagt að aukið svigrúm gæti orðið neytendum í hag og svo er talað um að miða eigi við viðráðanlegt verð. Í rauninni er engin vissa um hvort þetta verði neytendum í hag og það að auka þennan tíma úr sex mánuðum í 12 er eitthvað sem enginn veit hvort verði neytendum í hag og í rauninni ólíklegt að svo verði vegna þess að yfirleitt er betra fyrir neytendur að geta flutt sig um set ef þannig stendur á. Og síðan þetta með að það eigi að miða við viðráðanlegt verð; viðráðanlegt verð er náttúrlega vægast sagt teygjanlegt hugtak.