fjarskipti .
Virðulegur forseti. Það er vissulega til úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála og fjallað um það í greinargerð með frumvarpinu að borið hafi á gagnrýni um óskýr valdmörk milli annars vegar samkeppnisyfirvalda og hins vegar Póst- og fjarskiptastofnunar og þessarar úrskurðarnefndar. Ég vænti þess að umhverfis- og samgöngunefnd rýni vel þetta frumvarp og fari vel yfir þessi óskýru valdmörk, hvort það þurfi að skerpa eitthvað á þeim og hvort það sé e.t.v. eitthvað til í þessum ábendingum um að neytendur þurfi að hafa enn þá sterkari úrræði til að áfrýja sínum kvörtunum.