fjarskipti .
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir andsvarið. Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að áætlaður kostnaður ríkisins sé allt að 185 millj. kr. á ári og feli þá í sér auka stöðugildi hjá Fjarskiptastofu. Það er ofboðslega erfitt að segja til um það hvort þetta dugi til, sérstaklega eftir því sem heimurinn verður flóknari og þessir stafrænu innviðir mikilvægari en nokkru sinni fyrr. En auðvitað veldur það ákveðnum áhyggjum hvers konar útreið bæði samgöngumál og fjarskiptamál og málefni fjarskiptainnviða hafa fengið í nýkynntri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem lofar nú aldeilis ekki góðu í þeim efnum. Það er mikilvægt að svona hertar eftirlitskvaðir séu ekki bara fjármagnaðar með einhverju einskiptisframlagi heldur sé fjármögnunin tryggð til framtíðar. Það er stutta svarið.