fjarskipti .
Herra forseti. Takk fyrir þetta. Þetta var auðvitað ekki einföld spurning og svarið liggur sannarlega ekki fyrir en það er mikilvægt að hafa í huga við vinnu nefndarinnar að tryggja þetta, af því að þetta er svo víðfeðmt og mikilvægt. Þegar maður leiðir hugann að því akkúrat hversu víðfeðmt þetta er þá koma upp í hugann vangaveltur: Er það eðlilegt að svona stórt mál heyri undir þetta ráðuneyti? Þarna er innviðauppbygging gríðarlega mikil. Þetta snýst um mjög flókna atvinnugrein. Ég var að velta fyrir mér hvort þingmaður hefði leitt hugann að því hvort rétt væri í þessari vinnslu, og þetta er ekki alveg sanngjörn spurning kannski og ég kalla bara eftir vangaveltum, að fá aðkomu fleiri ráðuneyta að þessu máli þegar nefndin fer að vinna það, t.d. innviðaráðuneytið (Forseti hringir.) sem í fyrra lífi held ég að hafi verið ráðuneytið sem var með þessi mál (Forseti hringir.) og þar þekkja menn mjög vel til, bara til þess að tryggja sem besta, (Forseti hringir.) vandaðasta vinnu í meðförum nefndar.