fjarskipti .
Virðulegi forseti. Ég verð að segja að mér hefur þótt gagnrýni félaga okkar í Miðflokknum á það að fjarskiptamálin hafi verið færð yfir í nýsköpunar- og háskólaráðuneytið úr því ráðuneyti sem að öðru leyti hefur með innviðamálin að gera býsna sannfærandi. Ég held að það megi bara taka undir ýmislegt þar. Ég held að það væri alls ekki svo galið einmitt að fá umsagnir eða fá álit frá fleiri ráðuneytum heldur en þessu núna í þinglegri meðferð þessa máls og þá jafnvel frá utanríkisráðuneytinu eða þjóðaröryggisráði. Þetta er náttúrlega frumvarp sem hefur með þjóðaröryggi að gera að svo miklu leyti, þannig að ég held ég geti tekið undir þá hugmynd hv. þingmanns.