152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[21:55]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir svörin. Í tilskipuninni sem þessar grundvallarbreytingar á fjarskiptaregluverkinu sem við erum að ræða hér, byggja á er, eins og hv. þingmaður kom inn á áðan, gert ráð fyrir allt að 24 mánaða binditíma. Samkvæmt upplýsingum sem ráðgjafarfyrirtækið Cullen hefur tekið saman er þetta hámarkssvigrúm í tilskipuninni nýtt í fjarskiptalöggjöfinni í Belgíu, Tékklandi, Frakklandi, Þýskalandi, Írlandi, Ítalíu, Hollandi, Spáni, Svíþjóð og Bretlandi. Vodafone fullyrðir t.d. að það væri hagfellt neytendum ef unnt væri að gera samninga til 24 mánaða. Ég þori ekki að segja til um það hér og nú. Þetta er kannski eitthvað sem þarf að ræða og rýna almennilega, hvort það sé raunveruleg ástæða til að lengja binditíma og þá þurfi að fara kannski alla leiðina upp eða hvort alls ekki sé ástæða til þess með tilliti til neytendaverndarsjónarmiða að lengja þennan binditíma, hvort við ættum bara að halda honum í sex mánuðum.