152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[21:56]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (andsvar):

Herra forseti. Þetta voru ágætispunktar sem hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson kom með enda er mikilvægt að taka það einnig til greina. Hvort það sé mikilvægt að fallast á þessi sjónarmið veit ég ekki enda er um stóra breytingu að ræða. Það sem hæstv. ráðherra gerði var einmitt eftir að hagsmunaaðilinn Vodafone bað um 24 mánaða binditíma að láta staðar numið við 12 mánuði þegar í núgildandi lögum eru það sex mánuðir. Ég held að þetta sé ágætis breyting. Ég held að þetta sé ágætis stökk, helmings stökk og svo kannski næst þegar þessi lög fá heildarendurskoðun verði tekið enn þá betra mið af sjónarmiðum og umsögnum hagsmunaaðila. Hv. þingmaður taldi upp fjölmörg lönd, ég man ekki alveg nákvæmlega hvaða lönd það voru sem hv. þingmaður taldi upp, en auðvitað þurfum við að líta til annarra landa þegar kemur að svona mikilvægum og stórum frumvörpum þar sem við erum frekar eftir á þegar kemur að þessum efnum. Ég vona innilega að það verði gert við endurskoðun á þessu frumvarpi eftir nokkur ár.