152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[21:58]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir mjög skemmtilegar pælingar í sambandi við netöryggi og hvað felst raunverulega í netöryggi. Ég ætla að viðurkenna að ég er bara venjulegur og ef eitthvað frekar lélegur notandi á öllu svona. Ég tala í símann og nota Facebook en er svo sem ekkert mikið að velta öðru fyrir mér. Þetta er mjög áhugaverð umræða. Svo fannst mér líka áhugavert sem sagt var um reglugerðarvald ráðherra og af hverju frumvörpin eru ekki bara unnin þannig að það sé ekki þörf á reglugerðum. Við erum að samþykkja eitthvað hérna sem er kannski ekki fullunnið og svo er því breytt með reglugerð. Það er mælt fyrir lögum sem síðan er gert ráð fyrir að breyta og það er náttúrlega ekki mjög sniðug stefna.

Svo fannst mér þetta með gagnageymd í sex mánuði og upptalningin á því sem mér skildist að ekki bara mætti geyma heldur ætti að geyma vera nokkuð svakaleg. Hún var mjög víðtæk og virtist taka yfir eiginlega allt sem fólk gerir á netinu og að það sé hægt að fletta því upp langt aftur í tímann, eða alla vega sex mánuði, er bara pínulítið ógnvænleg tilhugsun. Ég er bara að spá í hvað þingmaðurinn telji að sé tilgangurinn með þessari viðamiklu gagnageymd og hvort þingmaðurinn telji að þessi gagnageymd brjóti í bága við persónuvernd.