fjarskipti .
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ásthildi Lóu Eyþórsdóttur fyrir góðar spurningar og góðar pælingar. Fyrst nefndi hún reglugerðarvald ráðherra. Ég verð að fá að taka undir með henni að einhverju leyti. Ég skil ekki af hverju þessi frumvörp eru ekki unnin. Er það vegna þess að á síðasta þingi tók svo langan tíma fyrir þingið að hefja störf út af svolitlu og svo var síðan krukkað í Stjórnarráðið eins og ég veit ekki hvað og ráðuneytin eru örugglega enn þá að feta sín fótspor og að reyna að finna sig og sérstaklega ráðherrarnir? Það á auðvitað ekki að bitna á þinginu. Það á ekki að leggja fram frumvörp sem eru ekki vel unnin og láta svo þingið sjá um rest, hvort sem það er hér inni í þingsal með endalausri umræðu og svo í nefndum og restin af valdinu fer bara til ráðherra sem setur allt um framkvæmd og ég veit ekki hvað og hvað í reglugerð. Auðvitað er þörf á reglugerðum þegar kemur að nánari útfærslu á sumum hlutum eins og til að mynda afglæpavæðingu neysluskammta. Þar þurfum við að mæla fyrir um tilgreindan neysluskammt nánar en í lögum. En þegar kemur að svona efnum skil ég ekki. Ég skil ekki þetta frumvarp sem gefur til kynna einmitt að reglugerðarvald ráðherra trompi lögin. Það er ekki í lagi. Við vitum alveg hvernig rétthæðin virkar. Lög eru æðri en reglugerð.
Hv. þingmaður kom svo inn á gagnageymdina og ég er sammála þeim sjónarmiðum sem hún kom fram með þar og spurði út í tilganginn með þessari upptalningu á hlutum sem falla þar undir. Ég ætla að fá að vera hreinskilin en þetta hljómar smá eins og það sé verið að gefa netöryggissveitum leyfi til að njósna um okkur með því að geyma gögnin um okkur. Þetta er einmitt eitthvað sem ég geri athugasemd við og ég vona að nái ekki fram að ganga, alla vega ekki svona víðtækt, ekki svona ítarlegt, og að það verði gerð athugasemd við þetta einnig í hv. umhverfis- og samgöngunefnd.