152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[22:05]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessar umræður sem hafa átt sér stað í dag því að mörg okkar erum nánast alveg blönk í svona tækniatriðum sem skipta samt svo miklu máli. Ég minnist þess þegar ég var sex ára í sveit og fyrsti síminn sem ég kynntist var sveitasími. Þar gátu allir hlustað. Okkur þótti mjög spennandi þegar einhver var að hringja á milli bæja að laumast í símann og fá að hlusta. Síðan breyttist umhverfið og maður hætti að geta hlustað. Það kom skífusími og eitthvað fleira og þá gat maður ekki hlustað lengur. Nú er bara afturhvarf til fortíðar. Nú er hægt að hlusta með alls konar aðferðum sem misvitrir einstaklingar virðast alltaf finna og geta nýtt sér, oftast til hagsbóta fyrir þá sjálfa með því að nýta þetta í vondum tilgangi, að reyna hafa fé af fólki og hóta fólki og nýta þetta í stríði og njósna um fólk. Þarna er komin tækni sem við einhvern veginn höfum ekki ráðið við og reynt hefur verið að bregðast við niðri í Evrópu með setningu laga og tilskipana um slíka hluti. Mér er sagt að þetta sé að koma hingað í þriðja skipti. Einhverra hluta vegna hefur ekki náðst utan um þetta mál á tveimur þingum en vonandi næst samstaða um að klára þetta mál á þessu þingi því það skiptir okkur verulegu máli að þessi umgjörð sé til staðar af því að það er svo margt undir í þessu. Líf okkar er farið að vera svo mikið í gegnum fjarskipti og í gegnum það að nýta okkur fjarskiptabúnað þannig að þetta er að verða eins og rafmagnið, ef maður gleymir símanum sínum heima er maður ómögulegur. Þessi tækni, þrátt fyrir að geta verið á köflum viðsjárverð, er farin að hafa mikil og jákvæð áhrif á okkur og gerir öll samskipti auðveldari og skjótvirkari.

Ég heyrði einn hv. þingmann segja í ræðu í dag að í gamla daga, þegar hann var lítill strákur og var að hringa í frænda sinn í Noregi, held ég, fékk hann að hringja einu sinni í mánuði því það var svo dýrt. En núna getur maður tekið upp símann og hringt nánast hvert sem er án mikils kostnaðar. Það sem virðist vera að gerast er að við erum að fá réttarbætur og neytendabætur í gegnum tilskipanir frá Evrópusambandinu. Þannig virkar þetta nú orðið. Í flestum tilfellum er það Evrópusambandið sem býr til þessar réttarbætur sem nýtast okkur þrátt fyrir að við séum ekki í þessu sambandi, þessu vonda sambandi. Ég vil bara viðurkenna það að ég hef ekki mikla þekkingu á þessu. Maður hefur í flestum tilfellum bara verið neytandi, maður hefur notað búnaðinn og svo látið öðrum eftir að hugsa um að tryggja að allt annað sé í lagi. Maður treystir á að sérfræðingarnir, tæknimennirnir, sjái til þess að allt sé í lagi en svo vaknar maður upp við vondan draum. Við höfum margsinnis vaknað upp við að það var búið að splundra öllum vörnum. Það er verið að ræna fullorðið fólk með því að komast inn í heimabanka og stela af fólki. Það er verið að dreifa óvönduðu efni, persónulegu efni, á netið. Það er verið að fara inn í, eins og hér hefur verið bent á, tölvubúnað fólks og nýta það svo í áframhaldi til að ráðast á aðra tölvur. Þessir svokölluðu hakkarar, eða hvað þetta er kallað, virðast alltaf finna einhverjar aðferðir til þess að — ja, alla vega ekki láta gott af sér leiða, það er eitthvað annað sem þeir eru að velta fyrir sér.

Þess vegna er svo nauðsynlegt að til staðar sé einhver umgjörð eða heildarlög sem ná utan um allt þetta rosalega stóra svið sem erfitt er að ná utan um, ekki bara tæknimálin heldur líka hvernig við erum varin. Það er ekki nóg að við búum til 5G og hendum gögnum á milli á ljóshraða eða þaðan af hraðar heldur þarf að hugsa um neytendur og að þeir séu varðir fyrir þessu umhverfi sem getur oft og tíðum verið ansi vont, verð ég að segja. Þess vegna eru þessi lög mikilvæg. Væntanlega getum við fundið á þeim einhverja vankanta og það er búið að gera grein fyrir ýmsum málum hvað þá varðar og tilteknar ákveðnar greinar í frumvarpinu sem rétt er að skoða betur. Það hefur m.a. verið bent á heimildir stjórnvalda til að grípa til aðgerða vegna netöryggis og handvelja einhvern sérstakan búnað sem þau telja að sé bestur. Eða að stjórnvöld misnoti aðstöðu sína og velji þann búnað sem vinir þeirra bjuggu til eða hafa umboð fyrir. Ákveðin lönd voru að banna búnað frá Kína af því að Kína var óvinur og þetta væri þá bara njósnabúnaður sem væri verið að koma inn á heimili fólks. Það þarf að fara yfir það hversu miklar heimildir stjórnvöld eiga að hafa til að handvelja fyrirtæki sem þeim eru þóknanleg.

Annað sem hefur verið minnst á er neytendaverndin og hvers konar samninga á að gera og hvers konar samningaheimild á að gera. Ég ætla ekki að hafa sérstakar skoðanir á því en það hefur verið nefnt að það sé búið að færa binditíma úr sex mánuðum í 12 en að heimildin til að þessir samningar séu til 24 mánaða sé til staðar. Ég veit ekki hvað er rétt í því. Kannski skiptir það máli fyrir neytandann að ekki séu gerðir langir samningar til að auðvelda honum að skipta um þjónustuaðila ef honum sýnist svo. En svo getur líka verið hin hliðin, að lengri samningur geti búið til betra verð og búið til einhvern stöðugleika hjá þeim sem er að selja, hann þurfi ekki alltaf að vera úti á markaði að leita að kúnnunum heldur sé einhver stöðugleiki og fyrirsjáanleika í því sem hann er að gera. Þetta skiptir auðvitað máli.

Síðan þarf að ná utan um það hversu miklar persónulegar upplýsingar neytendur eiga að láta af hendi. Það þarf að tryggja að fólk njóti persónuverndar alveg út í ystu æsar. Það er margt í þessu sem þarf að skoða. Hér hafa verið hugmyndir um forvirkar aðgerðir lögreglu til að hlera síma fólks og spurningin er hversu langt er hægt að ganga til þessa að fá upplýsingar um fólk. Ég held að þetta þurfi allt að skoða og þá fyrst og fremst með hagsmuni fólks í huga en ekki fyrirtækjanna. Þetta á auðvitað alltaf að snúast um að verið sé að veita fólki þjónustu, ekki að einhverjir aðilar séu að hafa hag af einhverjum viðskiptum. Þetta er fyrst og fremst þjónusta og til þessa hluta á að horfa. Þess vegna er nauðsynlegt að við séum að búa til regluverk sem dugar til þess að vernda neytandann. Ég held að þegar við skoðum flestar reglugerðir sem koma frá Evrópusambandinu séu þær á þann veginn að það sé verið að horfa til þess að tryggja að ekki sé verið að ganga á rétt einstaklinganna.

Manni fannst það nú svolítið skemmtilegt þegar maður gat farið að fara til útlanda og þurfti ekki að borga formúur fjár fyrir það að tala í síma. Á sínum tíma þegar maður fór til útlanda var maður bara kominn með tug og hundruð þúsunda króna reikning ef maður leyfði sér að tala í síma milli landa en þetta vonda Evrópusamband kom í veg fyrir það og sá til þess að við fórum að borga skaplega reikninga á Íslandi sem og annars staðar. Þannig að ég held að við hljótum að fagna því að þetta sé að verða að veruleika, að það sé að verða til umgjörð utan um öll fjarskipti. Við eigum bara að leggjast á eitt um að láta þetta verða að lögum á þessu þingi og ekki láta þetta daga uppi í skúffu eitt þingið enn. Að sjálfsögðu má horfa til ákveðinna hluta sem gætu bætt þetta. Þá er ég fyrst og fremst að velta fyrir mér þessum atriðum eins og hversu langir samningar eiga að vera og hversu miklar heimildir ríkið á að hafa, bæði gagnvart þeim aðilum sem veita þessa þjónustu og að neytendavernd sé í hávegum höfð í þessu máli sem og öllum öðrum málum sem við erum að fjalla um hér. Þetta snýst allt um að við horfum á þetta með augum neytandans og að það sé verið að búa til varnir.

Að lokum, af því að þarna er verið að tala um úthlutun á tíðni sem er til sölu og það á að hafa út úr því þegar allt er selt um 750 milljónir, held ég, og þá fer maður að velta fyrir sér: Þarna er einhver takmörkuð auðlind, tíðni, sem ríkið getur selt. Þarna er verið að gera akkúrat það sem á að gera við takmarkaðar auðlindir, þ.e. að borga fyrir að fá að nýta þær, ekki bara þessa, ekki bara fjarskiptatíðnir heldur líka allar þær auðlindir sem þjóðin á.