152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[22:20]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu. Mig langar að koma inn á nokkur atriði sem hv. þingmaður nefndi í ræðu sinni. Í fyrsta lagi er það atriðið sem hefur nokkuð verið rætt hér í dag og snýr að hámarkslengd bindingar í samningum. Samkvæmt frumvarpinu er verið að lengja tímann úr sex mánuðum í 12 og Kóðinn gerir ráð fyrir 24 mánaða hámarki. Hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson las upp löndin sem eru með 24 mánaða markið, sem eru allmörg innan Evrópu. Ég held að það væri skynsamlegt að hv. umhverfis- og samgöngunefnd óskaði eftir því að einhvers lags greining færi fram á þessu því það blasir ekki við hvað er hagfelldast fyrir viðskiptavininn. Það er augljóslega kostnaður af því fyrir fyrirtækin að elta kúnnann ítrekað, þessi stöðuga hringekja. En á móti er auðvitað hvatinn við það að geta alltaf verið að sækja bestu tilboð. En ég held að við ættum að reyna að nálgast þetta út frá því hvað er líklegt til að vera raunverulega til mests hagræðis fyrir kúnnann og þar held ég að hagsmunir fyrirtækja og viðskiptavina geti að miklu leyti farið saman. En við verðum að nálgast þetta út frá einhverri vissu eða alla vega eins góðum upplýsingum og við getum. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann telji það mögulega skynsamlega leið, við höfum tíma til þess í nefndinni, að fram fari greining á þessu og þetta atriði yrði mögulega lagað að því. Kannski er þessi 12 mánaða tillaga best. Ég er hræddur um að sex mánaða nálgunin sem Danir einir eru með, ef ég skil það rétt, til viðbótar við okkur, sé mjög knappur tími, en hvort það gæti verið lausnin á þessu.