fjarskipti .
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er sammála þingmanninum hvað þetta varðar. Ég held að það þurfi að gera einhverja greiningu á þessu. Ég geri mér ekki á þessum tímapunkti grein fyrir því hvort sé betra. Það er gott að vera með 24 mánuði af því að ég held að það geti fengist meiri afsláttur í gegnum það að vera með lengri samning og stuttur samningur verður til þess að þá koma alltaf dauð tímabil hjá fjarskiptafyrirtækjunum þar sem þau hafa ekki kúnnann. Einhvern veginn þurfa þau að brúa þann tíma og þá gera þau það væntanlega með hærra verði. Á móti kemur að með löngum samningi komum við kannski í veg fyrir að fólk geti skipt um þjónustuaðila ef það vill gera það. En eins og hv. þingmaður segir þá held ég það sé rétt að fram fari mat á þessu. Það skiptir máli að rétt sé að farið og kannski er einhver gullinn meðalvegur góður hvað þetta varðar. Ég myndi telja að sex mánuðir væru allt of stuttur tími. Þess vegna held ég að það sé til góða að lengja tímann upp í 12 en ég er ekkert viss um að ég yrði sérlega mótfallinn því að það væri heimild til að gera lengri samninga en þá er það bara kúnninn sem ákveður það. Vill hann gera 12 mánaða samning eða 24 mánaða? Það á að vera ákveðið valfrelsi í þessu sem öðru.