152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[22:26]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, við erum sammála um það. Kostnaðurinn mun að lokum lenda á viðskiptavininum. En spurningin er alltaf þessi: Hverjir eiga að njóta þeirra auðæfa sem þjóðin á? Það eru ekkert allir sem nýta þetta og með því að hafa auðlindagjald á þessu væri hægt að dreifa því til allra, ekki bara þeirra sem njóta. Að því leytinu til finnst mér eðlilegt að greitt sé auðlindagjald sem lendir á þeim sem nota. En af því að þetta er eitthvað sem þjóðin á sameiginlega þá styð ég að þetta sé gert með þessum hætti. En mér finnst auðvitað bara svolítið skemmtilegt að lesa þetta, þarna er verið að tala um auðlindagjald og þarna er verið að tala um að þetta sé framseljanlegt og þetta eru hugtök sem maður kannast við varðandi aðrar auðlindir og gaman að sjá hvernig þetta verður formað í lokin.