fjarskipti .
Frú forseti. Ég náði ekki að fara yfir alla punktana og þar sem ég vona að einhver úr umhverfis- og samgöngunefnd sé að hlusta þá ætla ég að reyna að renna í gegnum þá á fimm mínútum og verður sennilega dálítið of hratt talað. Í 14.–16. gr. er verið að tala um úthlutun tíðniréttinda. Eins og komið hefur fram í umræðum þá eru þau kort af dreifikerfum sem fjarskiptafyrirtækin sýna oft það sem við köllum fræðileg kort, þau sýna hvar merkið gæti kannski mögulega við allra bestu aðstæður náðst. En raunveruleikinn er allt annar. Hann er sá að merkið er ekki að nást út um allt. Þá langar mig að benda á að þau okkar sem höfum átt við fjarskipti á vettvangi hamfara höfum nýtt okkur það að til eru einföld forrit sem hægt er að setja í síma og keyra síðan um og mappa þetta allt saman út á mjög auðveldan máta. Kannski væri ágætt að ráða einn eða tvo nemendur í að keyra um Ísland í sumar fyrir Fjarskiptastofu til að fá raunverulegt dreifikort.
En nú er ég þegar búinn með eina og hálfa mínútu og þarf að fara í næsta efni. Það eru 53. og 54. gr., en þar er fjallað um reikikostnað. Kostnaður hefur svo sannarlega, eins og einn hv. þingmaður benti á, lækkað við það að fara á milli landa en betur má gera en við höfum gert hingað til. Í dag eru það Evrópubúar sem fá frítt hingað og ég held að það væri af hinu góða að reyna að fá reikisamninga við helstu lönd sem við ferðumst til og þau lönd þaðan sem fólk ferðast til okkar þannig að auðveldara sé að fara á milli landa.
Í 74. gr. er talað um reikninga og gagnsæi þeirra og hér hefur einmitt verið fjallað um það hvað það er oft flókið að átta sig á því hvaða þjónustu er verið að borga fyrir. Þarna langar mig að hvetja umhverfis- og samgöngunefnd til að skoða hvað gerðist í Bandaríkjunum þegar fjarskiptafyrirtækin þar þurftu allt í einu að fara að gefa upp nákvæmlega á reikningum fyrir hvað var verið að rukka og brjóta niður kostnaðinn þannig að fólk gat farið að segja: Já, en ég var ekki að biðja um þessa þjónustu. Gagnsæið er ekki gott í þeim reikningum sem við fáum í dag.
Í 86. gr. er verið að fjalla um vernd fjarskiptavirkja. Þar langar mig sérstaklega að fjalla um 4. mgr., um fjarskiptastrengi sem liggja í sjó, og mig langar að biðja hv. umhverfis- og samgöngunefnd að skoða þær tillögur sem t.d. er verið að koma með um laxeldi í Seyðisfirði en þar liggur Farice-strengurinn inn til landsins líka og þarna sigla inn mjög stór skemmtiferðaskip á hverju sumri. Ef þið reynið að koma öllu þessu þrennu fyrir í einum firði þá áttar maður sig á því að það gengur ekki upp. En í frumvarpinu er ekki sérstaklega sagt til um það hversu langt frá sæstreng þessir hlutir þurfa að vera.
Ég ætla að fara aðeins til baka og nota 50 sekúndur í 68. gr., en þar er talað um að fjarskiptafyrirtæki sé óheimilt að gera ólíkar kröfur eða setja skilyrði sem tengjast þjóðerni, búsetu, staðfestu o.fl. Þarna held ég að listinn sé ekki nógu tæmandi miðað við það hvað við erum að venjulega að setja í lög og annað um það til hvers þurfi að horfa.
Í 71. gr. er talað um nethlutleysi. Það er mjög mikilvægt að ekki sé verið að rukka okkur um meira en það sem við erum að nota. Þarna eru tveir hlutir, annars vegar frá hverju er hægt að gefa undanþágur. Þarna þarf að vera með mjög takmarkaðan lista sem þarf að vinna vel í. Eins er talað um að hægt sé að takmarka aðgengi að gögnum og þar held ég að við séum að fara (Forseti hringir.) hættulega leið þar sem við byrjum að segja: Já, en miðflokkurinn.is, það er ekki góður vefur, (Forseti hringir.) honum skulum við fara að loka. Við skulum passa að við séum ekki með slíka hluti hér inni. (Forseti hringir.) Ég hef ekki náð að tala um annað eins og neyðarsamskipti og vernd neytenda að þessu sinni en ég vona að ég fái einhverjar spurningar um það.