fjarskipti .
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég held að þetta sé einmitt þetta jafnvægi sem við þurfum að reyna að finna í nefndinni gagnvart þeim greinum frumvarpsins sem kalla á ígrundaðri skoðun. Það eru nokkur atriði sem kalla á ígrundaða skoðun en þau eru ekki mjög mörg þannig að ég er mjög bjartsýnn á að það sé hægt að vinna þetta mál hratt og vel og klára það loksins. Ég trúi því hreinlega ekki að það verði fyrir þeim sömu hræðilegu örlögum og það varð fyrir hér á síðasta þingi, eins og hefur verið lýst ítrekað í dag.
Mig langar í seinna andsvari að spyrja hv. þingmann hvort hann telji svona fljótt á litið að eitthvað mætti bæta í greininni sem tekur á þessu aukna gegnsæi í framsetningu reikninga og þar fram eftir götunum fyrir viðskiptavini fjarskiptafyrirtækjanna.