fjarskipti .
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Ég er algerlega sammála, ég held að það sé ekkert stórvægilegt í þessu frumvarpi sem ekki er hægt að laga í umfjöllun nefndarinnar og að finna þennan gullna meðalveg eins og við töluðum um er, held ég, ekki stórmál. Ég hef farið í gegnum sumar þær greinar sem ég tel að þurfi að flagga og skoða og ég vona að það hjálpi nefndinni við vinnuna.
Varðandi gagnsæið, reikninga og 74. gr., þá finnst mér vanta meiri lýsingu á því að þarna sé verið að brjóta niður kostnaðarliðina og sjá virkilega hvað kostar hvað og að fólk átti sig á þessu, að það sé ekki, eins og var nefnt hér fyrr í dag, að borga aukalega fyrir eitthvað tvöfalt (Forseti hringir.) eða finna út úr því hvar þessi kostnaður kemur inn. Þetta hjálpaði (Forseti hringir.) virkilega í Bandaríkjunum þegar þetta var gert fyrir neytendur og ég vona að það geri það hér líka.