fjarskipti .
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni mjög innihaldsríka ræðu á stuttum tíma. Mig langar svolítið til að inna hann eftir skoðun á því hvað það er í þessu frumvarpi sem sérstaklega hvetur til nýsköpunar á fjarskiptamarkaði. Ég spyr vegna þess að hv. þingmaður hefur reynslu og þekkingu á þessu sviði og vegna þess að í frumvarpinu er töluvert rætt um að tilgangur frumvarpsins sé m.a. og ekki síst að stuðla að nýsköpun. Ég viðurkenni vissulega að ég hef ekki náð að lúslesa hverja einustu grein en ég átta mig ekki nákvæmlega á í hverju það á að vera fólgið. Hvað er það í þessu frumvarpi? Og ég spyr bara af forvitni vegna þess að það er gríðarlega mikilvægt að við hér á Íslandi sitjum ekki eftir í þróun og nýsköpun á þessu flókna sviði og helst að við náum að vera í fararbroddi og stýra svolítið eigin örlögum, ef svo má segja, fyrir utan síðan þau tækifæri sem búa í því að vera meðal fremstu þjóða. Ég spyr vegna þess að það er svo mikið talað um að þetta sé eitt af helstu markmiðunum en ég átta mig ekki á því hvað það er nákvæmlega í málinu sem er til þess fallið að ýta undir það að við verðum meðal fremstu þjóða í nýsköpun á fjarskiptamarkaði. Mér þætti áhugavert að heyra hugleiðingar hv. þingmanns um það.