152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[23:04]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég er sammála hv. þingmanni. Það er erfitt að finna beinar tengingar við nýsköpun, þ.e. að verið sé að fjalla sérstaklega um það. Það er samt svolítið þannig með fjarskiptin að þau eru grundvallarinnviðir til að opna á marga hluti. Við getum hugsað það þannig að rafmagnið skapaði fullt af nýsköpun þegar það kom á sínum tíma og að sama leyti gefur það að fá öruggari, hraðari, óheftari og ódýrari fjarskipti okkur möguleika á að búa til lausnir sem við gátum ekki áður. En til þess þurfum við að hafa aðgengi að fjarskiptum. Ég get bara tekið dæmi úr minni fortíð þegar ég var að vinna í Afríku, þar sem fjarskipti voru styttra á veg komin en t.d. hér, þegar þeir fóru að nýta símann til að senda peninga á milli. Það var 2005 eða 2006 að allt í einu opnaðist nýr möguleiki á því að koma með nýjar lausnir fyrir hópa, í þessu tilfelli íbúa á víð og dreif um Afríku, til þess að stunda viðskipti við banka í landi þar sem 95% af fólki var ekki með bankareikning og þannig opnaðist fyrir nýsköpun sem við höfðum ekki aðgang að áður. Það er svona sem nýsköpunin gerist, um leið og komið er með grunninnviði opnast allt í einu fullt af nýjum tækifærum. Ég held að með því að setja góðar reglur í kringum það þá gerist það — ég veit að frú forseti er upptekin við að uppfæra eitthvað þannig að ég er kominn yfir á tíma.