152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[23:07]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Frú forseti. Það er óvanalegt að sjá hv. þingmann vera fyrri til á undan bjöllunni, en ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er akkúrat málið að við þurfum að hafa þennan ramma til staðar til að ná að nýta okkur þessa tækni. Ég veit svo sem ekki hvað annað er hægt að fara yfir í þessu tiltekna máli. Við höfum rætt svolítið um samspil samkeppnismála og annarra eftirlitsstofnana, hvort sem það er Póst- og fjarskiptastofnun eða Samkeppnisstofnun. Ég velti því fyrir mér vegna þess að maður sér í umsögnum helstu hagsmunaaðila atvinnulífsins, þar eru bæði fyrirtæki sem eru að hasla sér völl og rótgróin fyrirtæki og stór og sterk og síðan þessi sprotafyrirtæki og nýsköpun, að þau viðra áhyggjur sínar af því að regluverkið sé að setja þeim of miklar skorður.

Mig langaði að spyrja: Deilir hv. þingmaður þeim áhyggjum að við séum með regluverkinu, sem verið er að setja til þess að tryggja öryggi og annað slíkt, að setja nýsköpuninni of miklar skorður? Er það eitthvað sem ástæða er til að hafa áhyggjur af að mati hv. þingmanns?