fjarskipti .
Frú forseti. Mig langaði að benda hv. þingmanni og öllum hv. þingmönnum á að Póst- og fjarskiptastofnun breyttist í Fjarskiptstofu fyrir nokkrum árum síðan. Póstmál eru ekki lengur undir þessum hatti. Spurning hv. þingmanns var um regluverkið að vissu leyti. Eins og ég nefndi í fyrri ræðu er regluverkið miðað við svolítið stærri markaðssvæði en Ísland og þess vegna þurfum við að passa okkur á að taka þann ballans á milli flækjunnar í regluverkinu og þess að við erum með fá fyrirtæki. Ég held að við verðum að hafa reglur vegna þess að ef við erum ekki með regluverk í kringum þetta sem er sterkt og gott þá lendum við einfaldlega í því sama og við höfum séð á öðrum sviðum, að þar verður samráð og neytendur líða fyrir það.