152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:04]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Já, ég verð að taka undir þetta. Mér finnst það ansi lélegt að formaður stjórnarþingflokks, hv. þm. Óli Björn Kárason, kalli það sem fram fer í þessum sal einhverjar málfundaæfingar. Ég veit ekki betur en að við höfum setið hér og átt í mjög góðu samtali við hæstv. heilbrigðisráðherra um hans frumvörp. Hér vorum við í gær að ræða frumvarp um fjarskipti. Ég ákvað nú að taka þetta með mér og sýna allar greinarnar sem ég fór mjög efnislega og málefnalega í gegnum hér í þingsal í gær um hvað mætti betur fara. Þetta er það sem við eigum að vera að gera sem alþingismenn. Þetta eru ekki einhverjar málfundaæfingar, við erum að sinna vinnunni okkar. Það er annað en hægt er að segja um marga aðra hv. alþingismenn úr stjórnarliðinu, þeir mæta ekki einu sinni hér.