152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

heimild lífeyrissjóðanna til erlendrar fjárfestingar.

[15:06]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin ætlar að stíga ákveðin hænuskref til að auka heimildir lífeyrissjóðanna til að fjárfesta erlendis. Þegar maður les álit Samkeppniseftirlitsins og fleiri sést að það er hætta á því að það veiki samkeppnisumhverfi og skapi hættu á eignabólum. Sjálfir hafa lífeyrissjóðirnir bent á að út frá hagsmunum sjóðfélaga, þeirra sem hafa greitt inn í lífeyrissjóðina, skapist talsverð hætta á bólumyndun á innlendum eignamarkaði sem getur leitt til þess að innleidd eignasöfn lífeyrissjóða verði að einhverju leyti ósjálfbær til framtíðar. Þessu til viðbótar, virðulegi forseti, er fjármagn lífeyrissjóðanna ráðandi í flestum stærstu skráðu fyrirtækjunum hérna á Íslandi. Með öðrum orðum er kominn upp sá vandi að sömu eigendur eru að bönkunum og helstu viðskiptavinir þeirra. Í þessu er auðvitað fólgin mikil áhætta eins og lífeyrissjóðirnir m.a. benda á. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra sem hefur lagt fram mál eða það eru alla vega búin að birtast drög að því að það eigi að taka þau skref að heimila lífeyrissjóðunum að fjárfesta í útlöndum úr helmingi upp í 68% frá þessu ári til ársins 2038 og þess vegna er talað um hænuskref.

Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Sér hann möguleika á því að fara hraðar í sakirnar og þá taka líka stærri skref? Það er verið að tala um hvort það eigi ekki að fara allt upp í 70%, jafnvel 75%, heimila lífeyrissjóðunum að gera það. Í fyrsta lagi spyr ég: Sér hann fram á það að taka stærri og ákveðnari skref og mörkin verði þá rýmri fyrir lífeyrissjóðina til að fjárfesta í erlendum eignum sem að þeirra mati skiptir máli til að verðgildi rýrni ekki fyrir sjóðfélaga sem þeir síðan bera ábyrgð á?