152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

heimild lífeyrissjóðanna til erlendrar fjárfestingar.

[15:08]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Hér er vísað í frumvarp sem nýlega var í samráðsgáttinni og við afgreiddum málið úr ríkisstjórn í gær með nokkrum breytingum eftir samráðsgátt. Það er nú í þingflokkum og verður því dreift hér á þinginu vonandi í dag eða á morgun. En já, ég get sagt sem svo að ég mun leggja það til að við tökum nokkurt tillit til fram kominna athugasemda, en við erum þó ekki að galopna fyrir erlendu heimildirnar heldur fylgja þeim ráðum sem við höfum fengið og byggjum á úttekt um þessi mál.

Það er í sjálfu sér mikið gleðiefni að sjá hversu sterkt lífeyrissjóðakerfið á Íslandi stendur. Það er ekki langt síðan íslenska lífeyrissjóðakerfið fékk fyrstu einkunn í samanburði við önnur kerfi. Það nemur nú um tvöfaldri landsframleiðslu þannig að það er ekki hægt að halda því fram að hér sé verið að tala um einhver hænuskref þegar lífeyrissjóðirnir fá á hverju ári auknar heimildir til þess að fara út vegna þess að í sjálfu sér má segja að eins og sakir standa sé hvert prósentustig eins og 2% af landsframleiðslu. Það eru háar fjárhæðir. Og þegar við erum farin að telja breytingarnar í tugum prósenta upp í, segjum 50% upp í 65%, þá erum við að ræða um breytingu sem nemur 30% af landsframleiðslu. Það eru nýjar heimildir til að fjárfesta í útlöndum. Það er skynsamlegt að gera og það er mjög ánægjulegt að við þurfum ekki að hafa miklar áhyggjur af þessu. En á hinn bóginn er rétt sem hv. þingmaður nefnir, það eru miklar áskoranir í því fyrir ekki stærra hagkerfi en okkar að hafa lífeyrissjóðakerfi sem er tvöföld landsframleiðslan. Að finna fjárfestingarkosti og finna góða ávöxtunarmöguleika er því mikil áskorun. Þess vegna m.a. held ég að það sé mjög tímabært að stíga þessi skref.