152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

heimild lífeyrissjóðanna til erlendrar fjárfestingar.

[15:10]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég fagna því ef tekið hefur verið tillit til þessara athugasemda lífeyrissjóðanna. Þeir eru markvisst að benda á að það sé raunveruleg hætta, eins og þeir hafa nefnt það sjálfir, á ruðningsáhrifum og bólumyndun á innlendum eignamarkaði sem síðan geti leitt til þess, sem er náttúrlega enn alvarlegra, að innlend eignasöfn lífeyrissjóða verði að einhverju leyti ósjálfbær til framtíðar. Lífeyrissjóðirnir hljóta að benda á þetta og ég fagna því ef ríkisstjórnin ætlar að stíga eitthvað lengri skref en hænuskref. Þetta eru hænuskref eins og þetta blasir við núna. Það má kannski ekki nefna fílinn í þessari postulínsbúð en það er auðvitað íslenska krónan. Við sjáum að fyrst og fremst er það yfirlýst ástæða fjármála- og efnahagsráðherra að fara varlega í sakirnar og það er ekkert óeðlilegt meðan við við erum með krónuna. En það er alveg ljóst að það er til að koma í veg fyrir að stöðugleika gjaldeyrismarkaða verði ógnað. Þetta er fyrst og fremst til þess að verja íslensku krónuna og ekkert annað og það er reyndar önnur umræða.

En meðan við búum við þetta tel ég engu að síður mikilvægt að skilaboðin verði skýr, að stigin verði stærri skref og tekið verði tillit til þessara athugasemda lífeyrissjóðanna um að fjárfesta enn frekar í eignum í útlöndum.