heimild lífeyrissjóðanna til erlendrar fjárfestingar.
Frú forseti. Meðal þess sem segir í nýútkominni skýrslu um þetta efni er að ekki sé ástæða til að ætla að fjárfestingar erlendis séu í eðli sínu eitthvað áhættuminni en fjárfestingar í íslenska hagkerfinu. Þess vegna er ekki alveg sanngjarnt að halda því fram að þetta snúist fyrst og fremst um íslensku krónuna. Við verðum engu að síður að taka það með í reikninginn að það getur haft áhrif á gjaldeyrisjöfnuð í landinu ef svona stórar fjárhæðir eru undir. Góðu fréttirnar eru þær að fyrir nokkrum árum komst íslenska þjóðarbúið í fyrsta sinn í jákvæða stöðu gagnvart útlöndum, eftir stöðugleikaframlögin, og sú staða hefur bara vaxið í millitíðinni. Þannig að við getum farið í þessa umræðu af miklu sjálfstrausti. Staða okkar gagnvart umheiminum hefur bara styrkst. Þá stöðu höfum við byggt upp á grundvelli og með stuðningi við okkar eigin gjaldmiðil.