152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

efnahagshorfur.

[15:13]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Hæstv. fjármálaráðherra hefur nú birt nýja fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar og það er ekki að sjá að þar sé mikið tillit tekið til þróunar síðustu mánaða, hvað þá síðustu vikna. Þó er haldið áfram með það sem virðist vera rauður þráður í stefnu þessarar ríkisstjórnar, að stækka báknið áfram. Bætt er í borgarlínustefnu Samfylkingarinnar í Reykjavík, borgað fyrir hana, og alls konar loft. En látum það liggja á milli hluta, herra forseti.

Ég spyr hæstv. ráðherra, þrátt fyrir að þess sjáist ekki stað í fjármálaáætlun: Hefur ríkisstjórnin gert einhver áform, einhverjar áætlanir um hvernig eigi að bregðast við þeim miklu efnahagslegu hamförum sem gætu orðið á heimsvísu nú; stóraukin verðbólga, mjög líklegur hráefnaskortur, til að mynda á byggingarefni? Hefur ríkisstjórnin lagt mat á hver áhrifin af þessu verða og búið til einhver viðbrögð, eitthvert plan um hvernig eigi að bregðast við þessu? Því að þetta mun óhjákvæmilega hafa mjög veruleg áhrif á íslenskt efnahagslíf eins og víða annars staðar, en við höfum lítið heyrt frá ríkisstjórninni um viðbrögðin.

Spurningarnar eru þessar, herra forseti: Hefur ríkisstjórnin lagt mat á hvers sé að vænta, hversu mikil áhrif geti orðið og er ríkisstjórnin með plan til að bregðast við því?