efnahagshorfur.
Virðulegi forseti. Það er nú kannski fyrst um útgjaldaþróunina, en samkvæmt nýrri fjármálaáætlun munu heildargjöld ríkisins fara lækkandi sem hlutfall af landsframleiðslu, þ.e. ef áætlunin nær fram að ganga. Í mínum huga þýðir það að opinberi reksturinn verður léttari fyrir hagkerfið og leggst ekki með aukinni byrði á skattgreiðendur heldur verður hlutfallslega léttari. Það er tiltölulega lítill raunvöxtur á útgjaldahliðinni á komandi árum.
Varðandi þær hamfarir, sem hv. þingmaður nefnir svo, sem við horfum upp á; afleiðingar stríðsins, vaxandi verðbólga, mögulega hráefnisskortur, þá hefur það verið rætt út frá ýmsum sjónarhornum í ríkisstjórninni. Við höfum verið með efnahagslegan vinkil á það mál og við höfum velt því upp hvers væri að vænta í orkumálum. Þá er ég kannski ekki síst að vísa til þess að eldsneyti hefur verið að hækka, olía. Við höfum líka verið að ræða málið út frá matvælaöryggi og skoða birgðastöðu. Það eru vinklar í þessu máli sem lúta að varnar- og öryggismálum, sem hafa sömuleiðis verið á dagskrá og eru í góðum farvegi. Ég myndi því vilja svara því játandi að á vettvangi ríkisstjórnarinnar hefur málið verið rætt og á hverjum stað er verið að horfa til ólíkra þátta. Í forsætisráðuneytinu er horft til þess að samhæfa aðgerðir stjórnvalda á þeim sviðum þar sem samhæfingar er þörf.
En það er dálítið snemmt, finnst mér, að kalla eftir því að menn grípi nú strax til umfangsmikilla ráðstafana. Við getum kannski leyft okkur að gleðjast yfir því að við höfðum þegar gripið til ráðstafana, eins og t.d. þess að fella niður vörugjöld og annars konar álögur, sem ella myndu leggjast á þá hluti sem nú eru að hækka mjög verulega í verði.